Ég setti um daginn auglýsingu á netið þar sem ég bauð eldavélina til sölu. Ákvað að byrja á henni áður en ég reyndi með þvottavélina. Og líka það að mig langaði ekkert til að vera þvottavélarlaus í marga daga. En engin viðbrögð við eldavélarauglýsingunni. Svo ég ákvað að vera tímanlega í að setja þvottavélina á sölu úr því að sala á heimilistækjum væri treg.
Ég var varla búin að samþykkja auglýsinguna þegar 4 aðilar voru búnir að lýsa yfir áhuga og vildu fá vélina strax. Ég seldi hana unga manninum sem sagðist koma með pabba sinn með sér til að bera þannig að ég slyppi við að hjálpa. Svo nú er ég þvottavélarlaus og ungarnir eiga bara að vera penir næstu dagana og sneiða hjá pollunum ...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ertu að flytja heim? Beint í kreppuna og allt havaríið?
Já, nú er að byrja nýjan kafla ;-)
Skrifa ummæli