föstudagur, 6. febrúar 2009

Frost, frost, frost

Já, það breytist ekki mikið veðrið hérna í Lilleström. langtímaspáin í dag fyrir næstu 10 dagana er frost, frost, frost og aftur frost á bilinu 5 til 15 gráður. Eftir viku getum við reyndar búist við að sólin fari að láta sjá sig og svo á að snjóa meira um helgina. Það góða við frostið er reyndar að gönguskíðaleiðirnar halda sér alveg og sömuleiðis snjóhúsin hennar Bryndísar. Við eldra liðið á bænum værum samt alveg til í að þiggja smá hlýindi.

Engin ummæli: