Sú yngsta í hópnum mínum varð 10 ára í gær og það var mikið búið að hlakka til og eiginlega búið að skipuleggja daginn í heilt ár af afmælisbarninu. Afmælisprógramið hófst með kvöldverði á laugardagskvöldið sem besta vinkonan var að sjálfsögðu boðin í. Svo gistu þær stöllur saman um nóttina og eftir pakkaopnun daginn eftir mættum við galvaskar í fjölskyldu- og húsdýragarðinn með pylsur og tilheyrandi og vinkonurnar að sjálfsögðu með dagpassa í tækin. Eftir 6 klst stím í tækjum og fleiru var haldið heim og stóru systurnar sóttar og dagurinn endaður með góðri máltíð á Pizza Hut.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Innilega til hamingju með dömuna!
Takk :-)
Til hamingju með skvísuna!
Tillykke med den smukke pige.
Takk, takk :-)
Til hamingju með dótturina. Bestu kveðjur til ykkar. Sveinn B.
Skrifa ummæli